Nú styttist;) Gleði Gleði

Kæru brúðkaupsgestir, nú fer að líða að stóra deginum og okkur langaði að koma nokkrum atriðum á framfæri nú á lokasprettinum.

Það hlakkar í okkur skötuhjúunum og því munum við byrja gleðina snemma. Á föstudeginum stöndum við í undirbúningi með hjálparhellunum okkar og munum enda með spaghetti bolognese að hætti skálholts og kvöldvöku. Þeir sem ætla að gista er velkomið að koma þá og eyða með okkur skemmtilegri kvöldstund fyrir stóra daginn og þurfa þá að láta vita fyrirfram við okkur eða Heiðu brúðkaupsstjóra - upplýsingar í færslunni hér fyrir neðan.

Varðandi gistingarmál er orðið fullt í Oddstofu þar sem brúðkaupið sjálft verður, en enn er nóg pláss á tjaldsvæðinu og nokkur herbergi laus á hótelinu(þarf að panta fyrirfram-upplýsingar í færslunni hér fyrir neðan). Við verðum einnig tilbúin með svefnpokapláss á flatsængum fyrir þá sem eru seinir á sér ef út í það fer:)

Við viljum einnig minna á að það er ekki vínbar á staðnum en við bjóðum upp á léttvín og bjór það sem birgðir endast fram eftir kvöldi, en fyrir þá sem vilja eitthvað meira er þeim velkomið að koma með sér og verðum við með bland og klaka ef út í það er farið. Þetta á nú að vera almennilegt sveitabrúðkaup svo allt er leyfilegt ef þú átt ullarpeysu eða ullarsokka!

Að lokum eru skilaboð frá veislustjórunum um að það væri gott fyrir þær að vita ef einhverjir eru að hugsa um að halda ræðu að koma því á framfæri til þeirra fyrir brúðkaupið ef það hefur ekki verið gert þegar - upplýsingar um þær eru í færslunni hér fyrir neðan.

Þá segjum við einfaldlega:
 
HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ YKKUR OG DEILA MEÐ YKKUR DEGINUM OKKAR!

No comments: