Um okkur
Við hittumst á Mývatni um verslunarmannhelgina á úrvals árinu 2000. Við eignuðumst soninn okkar Ólaf Björn þann 16. júní árið 2002 og trúlofuðum okkur 8. september árið 2006.
Hjónavígslan
Þann 30. ágúst næstkomandi verðum við gefin saman í Skálholtskirkju af séra Jóni Ragnarssyni. Athöfnin hefst klukkan fimm síðdegis.
Við viljum biðja gesti að staðfesta fyrir 1. ágúst næstkomandi til brúðhjónanna eða brúðkaupsstjóra en símanúmer þeirra og netfang er hér neðst á síðunni.
Veislan
Eftir athöfnina bjóðum við til veislu í skálanum Oddstofu sem er í um 5 mínútna göngufæri frá Skálholti. Þar munum við bjóða upp á hlaðborð og léttvín. Þá verða tónlistaratriði, skemmtiatriði, ræður, mikil gleði og óvæntur leynigestur;). Seinna um kvöldið þegar gestir hafa snætt góðan mat og hlegið lungun hrein verður salurinn rýmdur og hefst þá sveitaball með pompi og prakt.
Eins og sannri útilegustemmingu sæmir er gestum velkomið að hafa með áfengan vökva, ullarpeysu og góða skó svo getur gleðin haldið áfram fram á nótt. Það er alls konar gisting í boði, svefnpokapláss, tjald, hótelherbergi og pláss fyrir ferðahýsi af hvaða gerð sem er svo allir ættu að geta fundið gistingu við sitt hæfi og eitt góðum tíma í að samgleðjast með nýgiftu brúðhjónunum sem ætla að eiga stórskemmtilega og ógleymanlega brúðkaupshelgi. Öllum er velkomið að gista einnig föstudagsnóttina en þá verður undirbúningur, grill og kvöldvaka með brúhjónunum verðandi.
Við hvetjum brúðkaupsgesti til að taka þátt í veislunni með ræðum, skemmtiatriðum eða bara fagnaðarlátum. Endilega hafið
samand við veislustjórana ef þið hafið einhverjar hugmyndir. Upplýsingar hér fyrir neðan.
Skálholt er í fögru umhverfi með útsýni til Heklu. Laugarás er handan við hornið og þar er hægt að versla ferskt lífrænt grænmeti á Akri. Gullfoss og Geysir eru í sömu sveit og skammt undan eru sundlaugar, golfvellir, hestaleigur, veiðiár og góðar gönguleiðir.
Matseðill
Humarsúpa, íslenskt lamb og frönsk súkkulaðikaka
Boðið verður upp á léttvín og bjór með matnum.
Gisting
Í Oddstofu (skálholtsbúðum) eru 10 herbergi búin 2 rúmum hver og er hægt að leigja eitt herbergi á 4000 kr ásamt aukadýnum. Þar getur myndast góð stemming og upplifunin af brúðkaupinu verður meiri og skemmtilegri.
Þá bjóðum við upp á taldsvæði í garði Oddstofu þar sem er vel sleginn blettur með fallegu útsýni.
Til að panta eða fá frekari upplýsingar endilega hafið samband við brúðhjónin eða Heiðu, systir brúðarinnar, á netfangið heidaol@hotmail.com eða í s:692-5756
Þá höfum við tekið frá nokkur herbergi á hótelinu í Skálholtsskóla (Skálholtsstaður) fyrir þá sem kjósa að gista þar og er þá hægt að hafa samband í s:486-8870 og láta vita að um brúðkaupsgesti okkar sé að ræða.
Heimasíða Skálholts: http://www.skalholt.is/
Gjafalisti
Við höfum opnað ferðareikning fyrir brúðkaupið þar sem gott ferðalag gleður okkur jafn mikið og gjafir en því höfum einnig valið á gjafalista í eftirtöldum verslunum:
-Búsáhöld, Kringlunni, s: 568-6400. http://www.busahold.is - pottar og fleira
-Svefn og Heilsa, Listhúsinu Laugardal, s:581-2233. http://www.svefnogheilsa.is - tvíbreið sæng, heilsukoddar og sængurverasett.
Hafðu samband
Varðandi ræður, skemmtiatriði eða önnur fagnaðarlæti biðjum við um að haft sé samband við okkar elskulegu veislustjóra Kristínu og Katrínu í gegnum tölvupóst eða síma:
Kristín Erla Sigurðardóttir, stórvinkona brúðhjónanna, gsm: 868-1497, kristinerlas@gmail.com
Katrín Georgsdóttir, stórfrænka brúðarinnar, gsm: 864-8927
Varðandi brúðkaupið sjálft, gistingu og fleira er hægt að hafa samband við elskulega brúðkaupsstjóran okkar Heiðu, systir brúðarinnar á netfangið heidaol@hotmail.com, gsm: 692-5756.
Annars er ávallt hægt að hafa beint samband við brúðhjónin :)
Brúðurin: sími 844-8789, netfang: hoo5@hi.is
Brúðguminn: sími 896-8789, gulligolf@hotmail.com
Við hlökkum til að sjá ykkur á brúðkaupsdaginn okkar!
Gunnlaugur Hafsteinn Elsuson
og
Hrafnhildur Ólöf Ólafsdóttir
Gestabók í comments hér fyrir neðan;)
5 comments:
Hér væri gaman að heyra í þeim sem munu kíkja inn á síðuna:)
Hæ ! Þetta lítur út fyrir að vera svo vel skipulagt hjá ykkur, mér finnst við eiga svo mikið eftir í okkar stóra dag sem er eftir 3 vikur. En það eru svo margir litlir hlutir eftir sem virðast svo stórir þegar maður veit að allt ef að fara að gerast....., en þetta reddast allt að lokum og það sem skiptir mestu máli er að við Siggi mætum og játumst hvort öðru, hitt er aukaatriði, hehe.
Það væri gaman að heyra meira frá þér hvernig allur undirbúningurinn gengur.
Kveðja Arna Björk
p.s. við erum ekki með brúðkaupsblog, en við ætlum okkur að vera með brúðkaupsferðarblog : http://arnaogsiggi.blogcentral.is
Nú hef ég sko ástæðu til að hlakka til að komast heim. Mikið rosalega samgleðst ég ykkur, með mongóglotti og fiðring í maganum.
Þið getið gert ráð fyrir mér elsku Hrafhildur og Gulli.
Hlakka til og til hamingju
Ykkar vinkona
Anna
Hlakka svaka mikið til að vera viðstödd brúðkaup ykkar yndilsega fólk.. Kossar frá kötu
ég er hér og verða mun :)
kveðja Kristín Erla veislustjóri
Post a Comment